Tekin aftur til umhverfismats

Teigsskógur.
Teigsskógur. mbl.is/Helgi Bjarnason

Skipulagsstofnun hefur fallist á að taka upp fyrri úrskurð um veglínu um Teigsskóg. Hún er einn af þeim kostum sem koma til greina sem síðasti hluti vegarins um sunnanverða Vestfirði en henni var hafnað í umhverfismati árið 2006. Leiðin um Teigsskóg verður nú tekin með í nýju umhverfismati Vestfjarðarvegar.

Vegagerðin hefur á undanförnum árum unnið að umhverfismati fyrir Vestfjarðaveg (60) um Reykhólahrepp sem er síðasti hluti vegarins um sunnanverða Vestfirði, að því er kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Einn af þeim kostum sem hafa verið til skoðunar er veglína sem liggur um Teigsskóg, en henni var hafnað í umhverfismati 2006. Vegagerðin óskaði eftir því við Skipulagsstofnun í lok síðasta árs  að sú ákvörðun yrði tekin til endurskoðunar þar eð hönnuð hefði verið ný veglína um þennan kafla með mun minni umhverfisáhrifum en sú fyrri. Skipulagsstofnun hefur nú fallist á að verða við beiðni um endurupptöku á fyrri úrskurði og heimilað að leiðin um Teigsskóg verði tekin með í nýju umhverfismati Vestfjarðavegar um Reykhólahrepp ásamt fleiri valkostum.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar byggist fyrst og fremst á þeirri niðurstöðu stofnunarinnar að þær breytingar sem hafa verið gerðar á legu vegarins og þar með áhrifum á skóglendi, breytingar á fyrirkomulagi efnistöku, breyttar hönnunarforsendur og breytt hönnun á þverunum yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, feli allt í sér veigamiklar breytingar sem skapi forsendur til að endurskoða umhverfismat framkvæmdarinnar. Sem dæmi er nefnt að skóglendi skerðist um 16 ha í stað 26 ha vegna legu vegarins auk þess sem dragi úr skerðingu um 17 ha með því að falla frá efnistöku í Teigsskógi. Jafnframt er fyrirhugað að græða upp 9 ha raskaðs skóglendis meðfram veginum með kjarri.

Frétt á vef Vegagerðarinnar um ákvörðun Skipulagsstofnunar

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun mats á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar um Reykhólahrepp

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert