Bílvelta á Jökuldal

Slysið varð á Jökuldal á Austurlandi.
Slysið varð á Jökuldal á Austurlandi. mbl.is/Þórður

Um miðjan dag í dag varð umferðaróhapp á hringveginum í Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Egilstöðum fór jepplingur út af og valt þrjár veltur. Ökumaður var einn í bílnum og var hann fluttur á sjúkrahúsið á Neskaupsstað.

Var ökumaður nokkuð slasaður, en bíllinn er gjörónýtur. Sagði lögreglumaður á vakt að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum, en veður var gott og vegurinn auður þegar óhappið átti sér stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert