Ekki hægt að afgreiða beiðnir vegna verkfalla

Heimahjúkrun þjónar á hverjum tíma um 1100 íbúum á þjónustusvæðinu …
Heimahjúkrun þjónar á hverjum tíma um 1100 íbúum á þjónustusvæðinu en hjá henni starfa einnig sjúkraliðar auk hjúkrunarfræðinga. mbl.is/Eggert

Áhrif verkfalls hjúkrunarfræðinga hefur frekar lítil áhrif á heimahjúkrun velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Hjúkrunarfræðingar hjá heimahjúkrun velferðarsviðs sem hafa verkfallsrétt eru um 20.  Hluti þeirra hefur fengið undanþágu til starfa, hvort sem er á dagvinnutíma  eða á kvöldin svo áhrif verkfalls eru lítil hjá heimahjúkrun.  Auk þeirra starfa um 17 hjúkrunarfræðingar  samkvæmt  samningi  Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og  þeir eru ekki í verkfalli, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg

Áhrifanna gætir fyrst og fremst í afgreiðslu nýrra beiðna. Heimahjúkrun Reykjavíkurborgar fær um 120 beiðnir um þjónustu í hverjum mánuði en um 70% beiðna koma frá Landspítala.  Vegna verkfallsins verður ekki  hægt að afgreiða beiðnir eins og áður og mun stór hluti þeirra því bíða meðan verkfall varir.

Heimahjúkrun í Reykjavík þjónar einnig Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ á kvöldin og um helgar. Heimahjúkrun þjónar á hverjum tíma um 1100 íbúum á þjónustusvæðinu en hjá henni starfa einnig sjúkraliðar auk hjúkrunarfræðinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert