Óttast „algera kjaragliðnun“

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG.
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG. mbl.is/Ómar Óskarsson

Enn eina ferðina fáum við fréttir af því að túlkasjóður er tómur svo að fólk sem þarf að nýta sér túlkaþjónustu getur ekki tekið þátt í samfélaginu með eðlilegum hætti,“ sagði Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á Alþingi í dag. Sagðist hún hafa vaxandi áhyggjur af stöðu fatlaðs fólks og öryrkja í samfélaginu í ljósi fjárveitingastefnu þingsins.

„Þær jákvæðu fréttir eru nú að berast af vinnumarkaði að þar virðast samningar vera að takast, sem betur fer, um að lægstu laun muni hækka talsvert. Ég hef bara miklar áhyggjur af því að hér verði algjör kjaragliðnun. Það er að öryrkjar og fatlað fólk verði látið sitja algjörlega eftir. Til að svo verði ekki verðum við sem vinnum á Alþingi að sjá til þess að nægt fé verði tryggt inn í almannatryggingakerfið þannig að hægt sé að hækka bætur almannatrygginga svo að þeir sem þurfa að reiða sig á þær fjárhæðir geti lifað mannsæmandi lífi,“ sagði hún.

Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng og ítrekaði ummæli sín frá því á þingfundi í gær að tryggja yrði kjör lífeyrisþega nú þegar útlit væri fyrir að kjarasamningar væru að nást

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert