Seldir án lagaheimildar

Bankasýsla ríkisins segir fjármálaráðherra hafa skort lagaheimild til að framselja …
Bankasýsla ríkisins segir fjármálaráðherra hafa skort lagaheimild til að framselja eignarhluti ríkisins í Arion banka og Glitni til slitabúa. Samsett mynd/Eggert

Steingrím J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, skorti lagheimild til að framselja eignarhluti ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka í hendur slitabúum föllnu bankanna 2009.

Þetta er fullyrt í umsögn Bankasýslu ríkisins um frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra til laga um meðferð og sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum og fjallað er um í ViðskiptaMogganum í dag.

Vísar stofnunin til þess álits Ríkisendurskoðunar að samkomulag ríkisins við skilanefndir bankanna um yfirtöku á umræddum eignarhlutum teldist til ráðstöfunar á eignum ríkisins og félli því undir 29. gr. laga um fjárreiður ríkisins. Því hefði þurft að afla heimildar í fjárlögum fyrir árið 2010 til framsalsins en þau lög voru samþykkt á Alþingi hinn 22. desember 2009. Samningur um framsal eignarhlutarins í Arion banka átti sér hins vegar stað 3. september 2009 og hlutarins í Íslandsbanka þann 15. október sama ár, þ.e. annars vegar 110 dögum og hins vegar 68 dögum fyrir samþykkt fjárlaga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert