Strandblaksvöllurinn tilbúinn

Ljósmynd/ Reykjavíkurborg

Nú er unnið hörðum höndum að lokafrágangi við nýjan strandblaksvöll við Laugardalslaug. Völlurinn er reistur fyrir Smáþjóðaleikana 2015 sem verða settir mánudagskvöldið 1. júní.

 Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að mikið hafi gengið á við Laugardalslaug að undanförnu en þar hefur allt verið á fullu í undirbúningi fyrir Smáþjóðaleikana.  Búið er að leggja varanlegan strandblaksvöll við hlið laugarinnar en þetta verður í fyrsta sinn sem keppt er á alþjóðlegu móti í strandblaki á Íslandi.

Ljósmynd/ Reykjavíkurborg

Þrátt fyrir að völlurinn sé búinn til sérstaklega fyrir keppni á Smáþjóðaleikana er hann varanlegt mannvirki og verður hann opinn fyrir gesti Laugardalslaugar líkt og hreystibrautin við hliðina. Laugargestir munu því geta spreytt sig á strandblaki í framtíðinni sem bætir þjónustu Laugardalslaugar enn frekar. Þá verður völlurinn nýttur til innlendra og alþjóðlegra móta í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert