Sjö vilja í Grafarvogskirkju

Grafarvogskirkja.
Grafarvogskirkja. mbl.is/Ingólfur

Sjö umsækjendur eru um embætti prests í Grafarvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Embættið veitist frá og með 1. ágúst nk. Umsækjendur eru:

Mag. theol. Anna Þóra Paulsdóttir

Mag. theol. Helga Kolbeinsdóttir

Cand. theol. Kristinn Snævar Jónsson

Séra Kristján Björnsson

Séra Sigurður Grétar Helgason

Séra Úrsúla Árnadóttir

Mag. theol. Viðar Stefánsson

Frestur til að sækja um embættið rann út 22. maí sl. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts.

Frétt mbl.is: Tuttugu vilja í Grafarvogskirkju

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert