12 stiga hiti í Reykjavík á morgun

Ætli borgarbúar muni njóta sólarinnar í sundlaugunum á morgun?
Ætli borgarbúar muni njóta sólarinnar í sundlaugunum á morgun? Valdís Þórðardóttir

Á morgun verður að mestu leyti bjart sunnan heiða og verður allt að 12 stiga hiti í Reykjavík. Von er á dálitlum vindi, eða norðaustan 8-15 m/sek en kaldara verður á Norð- og Austurlandi.

Veðurhorfur næsta sólarhringinn:

Norðaustan 8-15 m/s. Rigning með köflum á N- og A-landi og hiti 2 til 7 stig. Bjartviðri að mestu sunnan heiða og hiti 6 til 12 stig yfir daginn.

Á þriðjudag:
Norðaustan og norðan 8-15 m/s. Rigning eða slydda á N- og A-landi og hiti 1 til 5 stig. Bjart með köflum sunnan heiða og hiti að 12 stigum yfir daginn. 

Á miðvikudag:
Norðan 5-13 m/s með rigningu N-til á landinu og sums staðar slyddu inn til landsins. Lægir seinnipartinn og dregur úr úrkomu. Hægari austanátt um um landið S-vert og bjartviðri framan af degi, en skúrir síðdegis. Hiti breytist lítið. 

Á fimmtudag, föstudag og laugardag:
Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skúrir eða dálítil rigning í flestum landshlutum. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á SV-landi. 

Á sunnudag:
Líkur á vestlægri golu með þurru og björtu veðri víða um land. Heldur hlýnandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert