Bíða eftir tilboði frá ríkinu

Enginn fundur hefur verið boðaður í deilunni. Ólafur G. Skúlason, …
Enginn fundur hefur verið boðaður í deilunni. Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sést hér fremstur á myndinni. mbl.is/Golli

„Það hefur ekkert gerst og boltinn er enn alfarið hjá viðsemjenda okkar,“ segir Ólaf­ur G. Skúla­son, formaður Fé­lags ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræðinga, en fé­lagið sleit viðræðum við samn­inga­nefnd rík­is­ins á föstudag eft­ir ár­ang­urs­laus­an fund.

Hann segir samninganefnd félagsins enn bíða eftir því að ríkið komi með raunhæft tilboð, og ekki hafi þótt ástæða til að halda viðræðum áfram á meðan það væri ekki á borðinu. Ríkissáttasemjari hafi þó haft samband við báða deiluaðila í dag en þeir hafi verið sammála um að ekki væri tilefni til að funda. Ekki er ljóst hvenær næsti fundur verður boðaður.

Ríkið lagði fram tilboð í síðustu viku sem hefði gert það að verk­um að eft­ir fjög­ur ár væru byrj­un­ar­laun hjúkr­un­ar­fræðinga 359 þúsund og að sögn Ólafs er það ekki eitthvað sem félagsmenn hefðu samþykkt. „Við komum þá með aðra útfærslu sem samninganefnd ríkisins var ekki samþykk svo við töldum engan grunn til að halda viðræðunum áfram. Nú þarf að finna aðrar leiðir til að nálgast hvort annað; við erum að skoða hlutina hjá okkur og þau vonandi hjá sér og svo verða menn einhversstaðar að mætast.“

Ólafur segir félagið búið að endurmeta kröfur sínar og þær hafi verið lagðar aftur fram. „Nú erum við bara að bíða eftir að ríkið komi með eitthvað raunsætt á móti svo við getum farið að skoða þetta af einhverri alvöru.“ Þá sitji stjórn félagsins ekki auðum höndum þar sem gríðarleg vinna fylgi því að halda utan um verkfall 2.100 félagsmanna þess. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert