Tilkynnt var um rán í verslun í Kópavogi skömmu fyrir klukkan sex í morgun. Réðust þar þrír hettuklæddir menn inn, ógnuðu starfsmanni og rændu verslunina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en þar segir ekki um hvaða verslun ræðir eða hvað þjófarnir höfðu með sér. Málið er í rannsókn.