Karlmennirnir þrír sem réðust inn í verslun í Breiðholti snemma í morgun ógnuðu starfsmanni versluninnar með sprautunál.
Umræðir verslun Iceland við Arnarbakka en mennirnir þrír, sem voru hettuklæddir, eru á tvítugs og þrítugsaldri. Fóru þeir með starfsmanninn inn í verslunina og bundu hann áður en þeir fóru ráns hendi um verslunina. Fóru þeir af vettvangi með nokkuð magn af tóbaki og 30 til 50 þúsund krónur í peningum.
Starfsmaðurinn gat losað sig á eigin rammleik og hringdi eftir hjálp. Málið er í rannsókn og að sögn lögreglu náðust góðar myndbandsupptökur af ráninu.
Frétt mbl.is: Hettuklæddir menn rændu verslun