Tryggðu sér sæti á heimsleikunum

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er Evrópumeistari kvenna í Crossfit 2015.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er Evrópumeistari kvenna í Crossfit 2015. Ljósmynd/​Vík­ur­frétt­ir-Páll Ket­ils­son

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir, Annie Mist Þórisdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir tryggðu sér í dag farmiða á heimsleikana í Crossfit sem fara fram í Kaliforníu í sumar. 

Fimm af tíu fulltrúum Evrópu á mótinu eru frá Íslandi. 

Björgvin Karl Guðmundsson tryggði karlaflokki. Þá lenti eina íslenska liðið í undankeppninni, CrossFit Reykjavík, í þriðja sæti í flokki liða og er því einnig á leið á mótið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert