Iðnaðarmenn samþykktu verkfall

Félög iðnaðarmanna samþykktu í atkvæðagreiðslu að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum. Verkföllin hefjast að óbreyttu þann 10. júní. Þetta kemur fram í frétt á vef Grafíu, félags bókagerðarmanna.

Félög iðnaðarmanna sem eru með samstarf við endurnýjun á almenna kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar, Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög Rafiðnaðarsambandsins viðhöfðu allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um heimild til verkfallsboðunar.

Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.

Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44,6%.

Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k.

Já sögðu 75,1%. Nei sögðu 22,1%. 2,8% tóku ekki afstöðu.

Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum, koma framangreind verkföll til framkvæmda, segir í frétt Grafíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert