Nemendum flugskóla hefur fjölgað mjög hér á landi síðustu misserin og Flugskóli Íslands hefur fest kaup á fjórum nýjum kennsluvélum til að mæta aukinni eftirspurn.
„Ég myndi áætla að um 40% fleiri sæktu flugnám hjá okkur nú en fyrir nokkrum misserum,“ segir Reynir Einarsson, yfirflugkennari hjá Flugskóla Íslands, í umfjöllun um mál þetta æ´Morgunblaðinu í dag. Þar læra 70-80 manns til einkaflugmanns en rúmlega 40 til atvinnuflugmanns.
Flugnemum í Flugakademíunni við Keili hefur einnig stórfjölgað. Af 70 nemendum hennar eru 50 í atvinnuflugmannsnámi. Um 60% nemenda Flugakademíunnar eru útlendingar.