Kviknaði í sólpalli

Eldur kviknaði í sólpalli við hús á Akureyri í morgun. Það var ekki hiti og sól sem áttu sök á eldsvoðanum heldur glóð frá sígarettu. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var það nágranni sem slökkti eldinn en enginn var heima í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Greiðlega gekk að slökkva og ekki er mikið tjón vegna hans.

Á Akureyri er fjögurra stiga hiti og alskýjað. Á Norðurlandi eystra er spáð norðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum. Hiti 3 til 8 stig. Norðan 8-13 í fyrramálið og slydda, en norðvestlægari vindur og rigning eftir hádegi á morgun. Hiti 1 til 5 stig.

Á miðvikudag:
Norðan 5-13 m/s með rigningu N-til á landinu og sums staðar slyddu inn til landsins. Lægir seinnipartinn og dregur úr úrkomu. Hægari austanátt um um landið S-vert og bjartviðri framan af degi, en skúrir syðst þegar líður á daginn. Hiti 1 til 6 stig norðantil, en allt að 12 stig sunnantil.

Á fimmtudag, föstudag og laugardag:
Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skúrir eða dálítil rigning í flestum landshlutum. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á SV-landi.

Á sunnudag:
Líkur á vestlægri átt með súldarlofti við vesturströndina en þurru og björtu veðri fyrir austan. Heldur hlýnandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert