Lést á gjörgæsludeild

mbl.is

Karlmaður sem slasaðist alvarlega í bifhjólaslysi í Hvítársíðu í Borgarfirði í síðustu viku lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Maðurinn, sem var indverskur ferðamaður, var á fertugsaldri.

Kona mannsins, sem er einnig á fertugsaldri, var farþegi á hjólinu þegar slysið varð en hún hlaut ekki alvarleg meiðsl. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi er slysið í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert