Líklega vaskað upp í skírnarskálinni

Staðarhólskirkja, Dalasýslu
Staðarhólskirkja, Dalasýslu Sigurður Ægisson

Nýverið var brotist inn í Staðarhólskirkju í Saurbæ í Dalabyggð en ekki er vitað hverjir voru þar að verki, að því er segir í frétt á vefnum Búðardal.

Þar er vísað í facebooksíðu Ragnheiðar Pálsdóttur, bónda í Hvítadal í Saurbæ, en hún er einn sóknarnefndarmanna og staðarhaldara Staðarhólskirkju í Saurbæ.

Ekki er vitað hverjir brutust inn í kirkjuna en þeir sem þarna voru á ferð hafa greinilega gramsað í flestöllu sem hægt var, og sóðað út gólfteppið í kirkjunni að sögn Ragnheiðar. 

Kirkjudyrnar voru opnar þegar komið var að og blöktu þær í rokinu þannig að klæðning kirkjunnar fékk að „finna fyrir því“ eins og Ragnheiður orðar það sjálf.

Á facebooksíðu Hugrúnar Reynisdóttur, bónda á Kjarlaksvöllum í Saurbæ, kemur fram að hún telji líklegt að þeir sem hafi brotist inn í kirkjuna hafi borðað þar, sofið, kveikt á kertum, spilað á orgelið og líklega vaskað upp upp úr skírnarskálinni.

Óskað er eftir því að ef einhverjir hafi orðið varir við grunsamlegar mannaferðir við kirkjuna eða geti gefið einhverjar upplýsingar um málið setji þeir sig í samband við lögregluna í Borgarfirði og Dölum í síma 444-0300.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert