Píratar stærstir í 5 af 6 kjördæmum

Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata.

Píratar væru stærstir í 5 af 6 kjördæmum Íslands ef niðurstöður kosninga væru í takt við Þjóðarpúls Gallup. Þetta kom fram í tíufréttum RÚV. Í Þjóðarpúlsinum segjast 34,1% aðspurðra myndu kjósa Pírata. Það er meira en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna tveggja.

Framsóknarflokkurinn fengi 8,9% fylgi, og hefur ekki mælst með minna fylgi síðan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók við formennsku í flokknum í ársbyrjun 2009.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23% og Samfylkingin 12,4%. Vinstri græn mælast með 9,8%. Björt Framtíð með 7,4% en Píratar með 34,1%. Það er meira en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna tveggja.

Á vef RÚV segir að ef þetta yrðu niðurstöður kosninga skiptust þingmenn þannig milli flokka að Píratar fengju 24 þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn 15, Samfylkingin 8 og Vinstri græn 6 en Framsóknarflokkur og Björt framtíð fengju hvor sína 5 þingmenn. 

Fréttastofa fékk Gallup til að reikna út fylgi við flokka í kjördæmum. Þær upplýsingar eru birtar með þeim fyrirvara að þar sem svörin eru mun færri en í könnuninni á landsvísu eru vikmörkin hærri.

Píratar mælast stærstir í öllum kjördæmum nema norðvesturkjördæmi.

Nánar á vef RÚV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert