Var skammt frá íbúð byssumannsins

„Ég var bara nokkrum skrefum frá íbúð mannsins þegar hann skaut af byssunni,“ segir Aron Daníel Hjartarson en hann var að vinna við að mála grindverk fyrir framan fjölbýlishús við Hlíðarhjalla í Kópavogi þegar skotið var af haglabyssu í íbúð í húsinu. Aðspurður segir hann að honum hafi brugðið mjög þegar hann heyrði háan hvell en ekki áttað sig á því strax að um haglabyssuskot hafi verið að ræða.

„Ég heyrði bara stóran hvell bak við húsið. Mér datt fyrst í hug að þetta væru bara einhverjir krakkar með gamla flugelda eða eitthvað slíkt og hélt áfram að mála. Síðan líða kannski 15-20 mínútur þar til lögreglan og sérsveitin kemur á staðinn fullvopnuð. Þá brá mér frekar mikið.“ Hann hafi ekki beinlínis átt von á því að verið væri að skjóta af haglabyssu í íbúðahverfi. það hafi verið ákveðið áfall að átta sig á því hvað væri í gangi.

„Lögreglan kallaði á mig og sagði mér að koma mér burt af svæðinu,“ segir Aron. Hann hafi ekki áttað sig alveg strax á aðstæðum og haldið áfram að mála í smá tíma en síðan farið og talað við lögreglumann sem hafi sagt honum hvað væri í gangi. Hann hafi síðan orðið við tilmælum lögreglunnar. Síðan hafi hann þurft að bíða nokkurn tíma eftir fari þar sem bíllinn hans hafi verið inni á svæðinu sem lögreglan lokaði. Þar sé hann enn.

Frétt mbl.is: Byssumaður í Kópavogi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert