Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp í vesturbænum í nótt. Hald lagt á lítilræði af ætluðum fíkniefnum. Fjórir tengdust þessum málum og voru þeir allir handteknir og fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem málin voru afgreidd og mennirnir látnir lausir að því loknu.