Foreldrarnir kallaðir til

Löggumyndir
Löggumyndir mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglunni í Kópavoginum barst tilkynning á tólfta tímanum í gærkvöldi um krakka sem voru að setja litla vinnuvél í gang.  Þeir forðuðu sér á hlaupum þegar lögregla kom á vettvang en um sex stráka var að ræða.

Lögreglan hafði upp á þeim öllum og voru foreldrar þeirra voru kallaðir á lögreglustöðina í Kópavogi þar sem málin voru rædd. Þeir fór allir til síns heima og telst málið afgreitt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert