Samninganefnd SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna ákvað á fundi sínum í gær að vísa viðræðum um endurnýjun kjarasamninga SFR, SLFÍ og LL við fjármálaráðherra til ríkissáttasemjara.
Samningsaðilar hafa fundað síðan í mars og telja fulltrúar samninganefndar félaganna fullreynt að ná samningi á milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara, að því er segir í tilkynningu.
Þá segir, að félögin þrjú hafi lagt fram sameiginlega kröfugerð í mars sl., en þau eru stærstu félögin innan BSRB sem semja við ríkið og hópurinn sem samið verður fyrir telur rúmlega 5200 manns.