„Það er í rauninni lítið að frétta. Við vorum á fundi með samninganefnd ríkisins og þeim fundi var frestað til kl. 15:00 á morgun. Þá hittum við þau aftur,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, í samtali við mbl.is um stöðu mála eftir að samningafundi lauk.
Þórunn vildi ekki staðfesta að samninganefnd ríkisins hefði lagt fram nýtt tilboð. „Það var ákveðið að fresta fundi og ekkert annað til umræðu en ákveðnar hugmyndir sem við höfum skipst á skoðunum um í dag,“ segir hún.
Fulltrúar bandalagsins funduðu með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, í gær þar sem málin voru rædd fyrir utan samningaborðið. „Okkur þótti jákvætt að fjármála- og efnahagsráðherra boðaði okkur til fundar og við ræddum stöðuna við hann ítarlega. Svo er að sjá hverju það skilar,“ segir hún að lokum.