Skoða skaðabótamál á hendur MAST

Tugir tonna af matvælum hafa skemmst á hafnarbakkanum og meira …
Tugir tonna af matvælum hafa skemmst á hafnarbakkanum og meira liggur undir skemmdum, samkvæmt Innnesi. mbl.is/Golli

Tugir tonna af matvælum liggja undir skemmdum á hafnarbakkanum vegna verkfalls opinberra starfsmanna. Matvælastofnun hefur nú hafnað erindi innflutningsfyrirtækisins Innness um að stofnunin sinni lagaskyldu sinni að votta innflutning á búvörum frá EES-ríkjum og því ljóst að matvælin munu ekki komast á markað hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda.

Kemur þar fram að lögmaður Innness hafi fært rök fyrir því að stofnunin geti vottað innflutning þrátt fyrir verkfall dýralækna, enda sé annars vegar engin krafa um að dýralæknar stimpli vottorð sem gefin eru út af öðrum dýralæknum í útflutningsríkjunum og hins vegar geti yfirmenn stofnunarinnar, forstjóri og yfirdýralæknir, gengið í störf undirmanna sinna til að bjarga verðmætum.

Í svarbréfi Matvælastofnunar kemur fram það álit stofnunarinnar að ekki sé heimilt eða mögulegt að leita til annarra starfsmanna en dýralækna til að sinna þessu verkefni. Yfirdýralæknir sé ekki yfirmaður starfsmanna inn- og útflutningsskrifstofu stofnunarinnar, sem séu í verkfalli. Þá sé hann í sama stéttarfélagi og aðrir dýralæknar hjá stofnuninni. Forstjóri stofnunarinnar geti ekki gengið í störf allra þeirra tæplega sextíu starfsmanna sem séu í verkfalli eða sett sig inn í verkefni þeirra og störf.

Í bréfi Matvælastofnunar kemur fram að stofnunin hafi í tvígang sótt um undanþágu til undanþágunefndar BHM og ríkisins vegna erindis Innness. Í bæði skiptin hafi erindinu verið hafnað.

Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness, bendir á í tilkynningunni að fyrirtækið hafi þegar orðið fyrir tuga milljóna króna tjóni vegna þess að MAST hafi ekki vottað innflutning búvara. Enn frekara tjón sé fyrirsjáanlegt, enda liggi vörur undir skemmdum. Yfirmenn stofnunarinnar hefðu getað gengið í störf undirmanna sinna til að bjarga verðmætum. „Undanþágunefnd hefur breytt afstöðu sinni, þannig að nú er verið að auglýsa ferskan innlendan kjúkling í búðum. Á sama tíma er engin tilhliðrun fyrir innfluttar vörur. Við íhugum alvarlega að sækja á hendur stofnuninni okkar tjón vegna þessa máls,“ segir Magnús Óli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert