10.000 hestöfl í einum bíl

Kraftmesti bíll sem komið hefur til landsins var settur í gang í Kapelluhrauni í dag. Bíllinn er knúinn 10.000 hestafla þotuhreyfli og hefur náð 500 km/klst. Bíllinn verður sýndur á sérstakri sýningu á fimmtudag en óhætt er að segja að hávaðinn sem kom þegar hann var settur í gang hafi verið ærandi.

Bíllinn fer 2 ferðir á brautinni á fimmtudag með tilheyrandi drunum, titringi og eldhafi sem stendur aftan úr honum. Koma hans tengist 40 ára afmæli Kvartmíluklúbbsins en bíllinn verður einnig til sýnis í Egilshöll um helgina ásamt 200 kraftmestu tryllitækjum landsins.

mbl.is var í Kapelluhrauni í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert