Réttarvernd erfið í flóknu kerfi

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata. mbl.is/Rósa Braga

„Þegar við lítum fram á veginn þá er mikilvægt að við höfum það í huga að fólk þarf að skilja að hverju það gengur, það þarf að skilja hvenær á því er brotið, hvenær einhver mistök hafa átt sér stað. Það þarf að vita hvernig það á að bregðast við. Það er ekki hægt á meðan kerfin eru of flókin,“ sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata, í umræðum á Alþingi í dag þar sem hann gerði að umtalsefni sínu almannatryggingakerfið.

Helgi sagði að „ofboðslega flókin kerfi“ gerðu réttarvernd mjög erfiða. Hann sagðist hafa lagt sig eftir því á síðasta þingi að reyna að skilja nákvæmlega hvernig almannatryggingakerfið virkaði. Hann hafi fengið svar frá ráðherra um það á fimm blaðsíðna þingskjali. 

„Ég lagðist yfir svarið, eyddi þó nokkrum tíma í að reyna að skilja það til hlítar. Ég er ekki fullkomlega sannfærður um að ég skilji það enn þá til hlítar, því meira sem ég reyni að læra um almannatryggingakerfið, því betur sé ég hversu óheyrilega flókið það er. Það er svo flókið að ég þori að fullyrða að enginn skilji það til hlítar. Þegar svo er búið um málin er réttarvernd skjólstæðinga almannatryggingakerfisins mjög erfið, jafnvel ómöguleg.“

Þegar kvartanir kæmu frá öryrkjum og ellilífeyrisþegum þá vaknaði löngun til þess að hjálpa þeim sagði Helgi. „Maður reynir að hjálpa, maður reynir að skilja málin en það er bara mjög erfitt. Ef það er þá mögulegt á annað borð. Maður veit ekki hvernig maður á að ráðleggja fólki. Maður veit ekki hvernig maður mundi breyta kerfinu til hins betra. Það að ausa peningum í það held ég að mundi ekki leysa mjög mikið fyrir mjög marga á meðan kerfið er svo óheyrilega flókið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert