Segir fjármunina miskabætur

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Fjármunirnir sem maður reiddi af hendi til Malínar Brand í apríl vegna meintra kynferðisbrota gegn systur hennar Hlín Einarsdóttur, voru miskabætur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Malín hefur sent á fjölmiðla.

Þar segir að Hlín hafi hringt í Malín að kvöldi laugardags 4. apríl í miklu uppnámi og sagt að sér hafi verið nauðgað. Þriðjudaginn eftir hafi hún leitað aðhlynningar á bráðamótttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis, þar sem starfsfólk mat ástand hennar þannig að hún hefði orðið fyrir nauðgun.

Malín segir að í kjölfarið hafi meintur gerandi átt samskipti við þær systur, þar sem hann lagði áherslu á að mannorð væri í húfi yrði hann kærður vegna málsins. Hlín hafi fallist á þau sjónarmið. Þá hafi þau orðið sátt um miskabætur, sem hann afhenti Malín þar sem systir hennar treysti sér ekki til að eiga samskipti við hann.

Tilkynningin í heild:

„Málsatvik í seinna málinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum voru eftirfarandi. Að kvöldi laugardagsins 4. apríl sl. hringdi Hlín systir mín í mig í miklu uppnámi og sagði mér að sér hafi verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum. Hún velti þá fyrir sér að kæra manninn. Hann reyndi að ná sambandi við hana daginn eftir en hún vildi ekki tala við hann. Í kjölfarið áttum við samskipti þar sem ég lýsti reiði minni en hann lagði áherslu, samkvæmt mínum skilningi, á að fá hana til að kæra ekki.

Á þriðjudeginum bað Hlín mig að keyra sig á bráðamótttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis þar sem hún fékk aðhlynningu og skoðun. Ástand hennar að mati starfsfólks þar benti til að hún hefði orðið fyrir nauðgun. Maðurinn lagði áherslu á að mannorðs síns vegna myndi nauðgunarkæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sakfellingar eða ekki, valda sér miklum hnekki. Systir mín féllst á þessi sjónarmið og úr varð sátt með greiðslu miskabóta. Upphæð bótanna var hennar tillaga.  Samskiptin fóru í gegnum mig því systir mín treysti sér ekki til að eiga þau. Eins og fram hefur komið veitti ég sáttafénu viðtöku fyrir hönd systur minnar og kom því áfram til hennar.  Sáttin var handskrifuð í tveimur eintökum sem aðilar undirrituðu, annars vegar viðkomandi og hins vegar ég fyrir hönd systur minnar, þar sem hver hélt eftir sínu eintaki. Upphæðin kom þar m.a. fram en ekki var um kvittun að ræða.

Ég legg áherslu á að ég vil ekki stuðla að því að flekka mannorð nokkurs manns. Ekki má sakfella neinn fyrr en mál hafa verið að fullu rannsökuð. Meint brot mannsins er alvarlegt, rétt eins og aðkoma mín að broti systur minnar gagnvart forsætisráðherra og fjölskyldu hans. Mér þykir óskaplega leitt að hafa valdið þessu fólki skaða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert