Erlendur nýr sviðsstjóri akstursþjónustu Strætó

Erlendur Pálsson.
Erlendur Pálsson.

Erlendur Pálsson hefur verið ráðinn í starf sviðsstjóra akstursþjónustu Strætó. Tekur hann við starfinu af Smára Ólafssyni sem hverfur nú á braut til nýrra starfa. Erlendur hefur víðtæka reynslu af málefnum fatlaðs fólks. Hann hefur undanfarna mánuði starfað sem sérfræðingur hjá akstursþjónustunni. Auk þess starfaði hann áður sem rekstrarstjóri Sólheima í Grímsnesi, segir í fréttatilkynningu.

Erlendur uppfyllir vel allar hlutlægar og huglægar hæfniskröfur og er talinn standa öðrum umsækjendum framar þegar á heildina er litið, s.s. vegna þekkingar á málaflokki fatlaðra, reynslu af umsjón þjónustuferla og upplýsingakerfis, auk stjórnunarstarfa. Áður var Erlendur framkvæmdastjóri Frjó Quatró ehf. og sölu- og markaðsstjóri TM Software. Erlendur er með diplómagráður í fjármálum og rekstri og í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Erlendur er  48 ára gamall, kvæntur og á 2 börn. Alls bárust 56 umsóknir um starfið. 

Capacent vann úr umsóknum og hafði umsjón með ráðningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert