Í skrúðgöngu á 60 ára afmæli Hlíðaskóla

Skrúðganga við Hlíðaskóla í dag.
Skrúðganga við Hlíðaskóla í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Nemendur og starfsmenn Hlíðaskóla létu rigninguna ekki á sig fá og fóru í dag í myndarlega skrúðgöngu um hverfið í tilefni af 60 ára afmæli skólans. 

Í tilefni dagsins verða tré gróðursett í grenndarskógi. Þá var vegleg afmælisveisla á skólalóðinni þar sem boðið var upp á margvíslega skemmtun sem og pylsur og auðvitað afmælisköku.

Fjölmenn skrúðganga við Hlíðaskóla í dag.
Fjölmenn skrúðganga við Hlíðaskóla í dag. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert