Lagasetning leysir ekki vandann

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Styrmir Kári

Ríkisstjórnin hefur nú ítrekað sett samskipti við aðila vinnumarkaðarins í uppnám. Þingflokkur Samfylkingarinnar harmar að tómlætið sem hún hefur sýnt í 10 vikna viðræðum við 17 stéttarfélög hefur bitnað harkalega á almenningi og opinberri þjónustu,“ segir í fréttatilkynningu frá þingflokki Samfylkingarinnar vegna lagasetningar á verkfallsaðgerðir BHM og hjúkrunarfræðinga sem samþykkt var í gærkvöldi.

Þingmenn Samfylkingarinnar segja lögin ekki leysa þann vanda sem fyrir hendi sé. Ná þurfi kjarasamningum við opinbera starfsmenn til þess að geta veitt góða opinbera þjónustu og byggja upp heilbrigðiskerfi sem stenst alþjóðlegan samanburð. Til þess þurfi að meta menntun til launa og ennfremur brúa kynbundinn launamun.

Tilkynningin í heild:

„Lög á verkföll BHM og hjúkrunarfræðinga leysa ekki vandann sem stjórnvöld standi frammi fyrir. Ef byggja á upp góða opinbera þjónustu og heilbrigðiskerfi sem stenst alþjóðlegan samanburð þarf að ná samningum við opinbera starfsmenn. Til þess þarf að meta menntun til launa og brúa kynbundinn launamun.

Með lögum á verkföllin er kjaradeilunum vísað til gerðardóms. Honum eru sett alltof ströng skilyrði til að ætla megi að niðurstaðan verði réttlát eða skapi vinnufrið. Því lagði stjórnarandstaðan fram breytingartillögur um að rýmka skilyrðin til að gerðardómur gæti tekið mið af öðrum opinberum kjarasamningum, s.s. samningum lækna og framhaldsskólakennnara. Jafnframt var lagt til að gildistími kjarasamnings gerðardóms megi vera að hámarki eitt ár. Þær tillögur voru illu heilli allar felldar.

Þingflokkur Samfylkingarinnar vekur sérstaka eftirtekt á að í minnisblaði landlæknis til ríkisstjórnarinnar var lögð áhersla á að yrði kjaradeilum við heilbrigðisstéttir lokið án samninga, þá yrði það ekki gert án „afdráttarlausra yfirýsinga" um áframhaldandi viðræður til að skapa „viðvarandi vinnufrið" innan heilbrigðisgeirans. Sinnuleysi ríkisstjórnarinnar speglast í því að við lok umræðna um bann á verkföllum í gær höfðu engar slíkar yfirlýsingar verið gefnar af hálfu heilbrigðisráðherra. Þingflokkurinn skorar á hann að gefa slíkar yfirlýsingar hið fyrsta.

Ríkisstjórnin hefur nú ítrekað sett samskipti við aðila vinnumarkaðarins í uppnám. Þingflokkur Samfylkingarinnar harmar að tómlætið sem hún hefur sýnt í 10 vikna viðræðum við 17 stéttarfélög hefur bitnað harkalega á almenningi og opinberri þjónustu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert