Ragnheiður Elín erlendis í 84 daga

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Friðrik

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fór í 23 utanlandsferðir í embættiserindum á fyrstu tveimur árum kjörtímabilsins, frá maí 2013 til maíloka 2015. Ferðirnar kostuðu samtals tæpar tuttugu milljónir króna.

Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn frá Katrínu Júlíusdóttur, varaformanni Samfylkingarinnar. Katrín spurði alla ráðherra ríkisstjórnarinnar um utanlandsferðir þeirra.

Ragnheiður Elín var erlendis í opinberum erindagjörðum í 84 daga fyrstu tvö ár kjörtímabilsins.

Fram kemur í svarinu að dýrasta ferðin hafi verið vikulöng ferð til Melbourne í Ástralíu, þar sem ráðherrann sótti ráðstefnu um orkumál, en ferðin kostaði tæplega þrjár milljónir króna. 

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráðherra hef­ur varið sam­tals 62 daga í op­in­ber­um ferðum er­lend­is það sem af er þessu kjör­tíma­bili sam­kvæmt svari hans við fyrirspurninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert