Sakfelld fyrir rangar sakargiftir
Kona var í dag í héraðsdómi Reykjavíkur dæmd í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rangar sakargiftir. Hún kærði til lögreglu alls átta einstaklinga fyrir kynferðisbrot, hótanir og ólögmæta nauðung.
Taldi hún aðilana hafa meðal annars veist að henni með ofbeldi, sett hana í kalda sturtu, tekið sig hálstaki, kastað sér í gólfið, stungið fingri upp í endaþarm hennar og leggöng og stungið sprautunál í andlit hennar og leggöng og sagt hana vera smitaða af lifrabólgu C auk þess sem hún sagði einhverja brotaþolanna hafa troðið í hana parkódín forte og rohypnoli, tekið hana hálstaki og látið hana ganga nakta úti á götu.
Hið meinta atvik á að hafa átt sér stað eftir þorrablót í janúar 2012. Hún fór á neyðarmóttöku nokkrum vikum síðar í febrúar þar sem hún var með marbletti sem hún sagði vera eftir hina meintu árás. Taldi læknirinn að marblettirnir gætu ekki verið eftir atvik sem svo langur tími væri liðinn frá.
Kallaði verjandi konunnar eftir því að dómkvaddir yrðu matsmenn til þess að framkvæma geðrannsókn á konunni. Hinir dómskvöddu matsmenn töldu hana sakhæfa þar sem ekki var um geðrof að ræða.
Einstaklingarnir sem konan hafði kært fyrir kynferðisbrot sögðust einhverjir hafa verið í samkvæmi með konunni þar sem fjöldi fólks var viðstaddur. Engin hafi hins vegar brotið gegn konunni.
Í niðurstöðu dómsins er frásögn hennar sögð ótrúverðug. Litið var til þess að konan lýsti því að hún hafði drukkið sterkt áfengi í samkvæminu eftir þorrablótið auk þess sem hún sagði að henni hafi verið byrlað rohypnol. Taldi dómurinn það ekki standast þar sem frásögn hennar um einstaka atburði kvöldsins var einkar nákvæm auk þess að áverkar í samræmi við frásögn hennar voru ekki til staðar.
Þá var einnig litið til þess að hún hafi verið á allan hátt hikandi í frásögn sinni fyrir dómi og atburðarásin meira og minna sundurslitin.
Þá taldi dómurinn að öllum staðreyndum málsins virtum að henni hafi ekki geta dulist við lögregluyfirheyrslur að hún var með röngum framburði og rangri kæru að saka átta einstaklinga um refsiverða háttsemi. Þá leiddi hinn rangi framburður meðal annars til þess að einn brotaþolinn missti vinnuna. Þarf hún að greiða hverjum og einum brotaþolum 500 þúsund krónur í skaðabætur auk málskostnað.

