Ekki hægt að hringja í 118

Frá og með miðnætti á morgun verður ekki hægt að …
Frá og með miðnætti á morgun verður ekki hægt að hringja í 118. mbl.is/Golli

Frá miðnætti á morgun, 30. júní, verður ekki lengur hægt að fá upplýsingar um símanúmer í stuttnúmerinu 118. Þrír aðilar munu veita þessa þjónustu frá og með 1. júlí. Þetta eru fyrirtækin Halló ehf. í símanúmerinu 1800, Já í símanúmerinu 1818 og Nýr valkostur ehf. í símanúmerinu 1819.

Á sama tíma mun Póst- og fjarskiptastofnun yfirtaka númerið 118 frá Já upplýsingaveitum hf. sem veitt hefur þessa þjónustu í númerinu um árabil.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Póst- og fjarskiptastofnun.

Með ákvörðun PFS nr. 31/2013 var aflétt alþjónustukvöðum af Já upplýsingaveitum hf. og kveðið á um afturköllun leyfis til notkunar á símanúmerinu 118 frá og með framangreindri dagsetningu.

Þessi aðgerð stofnunarinnar er liður í umfangsmeira verkefni hennar við að skapa forsendur fyrir jafnari samkeppni á markaði fyrir upplýsingaþjónustuveitur með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Hefur þessi vinna m.a. leitt til þess að nú eru, eins og áður segir, þrír aðilar á markaði sem veita upplýsingar um símanúmer, þ.e. Halló ehf. í símanúmerinu 1800, Já í símanúmerinu 1818 og Nýr valkostur ehf. í símanúmerinu 1819.

Í byrjun júlí munu svo taka gildi endurnýjaðar reglur um skipulag, úthlutun og notkun númera, númeraraða og vistfanga á sviði fjarskipta, sem taka mið af framangreindum breytingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert