Kjölur opinn að Kerlingafjöllum

Allur akstur innan skyggðu svæðanna er bannaður þar til annað …
Allur akstur innan skyggðu svæðanna er bannaður þar til annað verður auglýst. Skjáskot/Vegagerðin

Búið er að opna veginn um Kjöl að Kerlingarfjöllum að sunnan og einnig er búið að opna Mælifellsdalsveg, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Verið er að opna hálendisvegi einn af öðrum þessa dagana en mikill snjór hefur verið á hálendinu.

Opnun fjallvega fer eftir veðurfari að vori eða í sumarbyrjun og ráða þar snjóalög mestu um opnunartíma. Bleyta í vegum getur einnig valdið því að vegir opnist seint.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert