Bjarni: Mikil eftirsjá að Pétri Blöndal

Pétur H. Blöndal, fyrrverandi alþingismaður.
Pétur H. Blöndal, fyrrverandi alþingismaður.

Það er mikil eftirsjá að Pétri, en hann getur verið stoltur af ævistarfi sínu og þeirri fyrirmynd sem hann var og verður með hugsjónum sínum, vinnusemi og trúfesti,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann minnist Péturs H. Blöndals, fyrrverandi þingmanns flokksins, sem lést á föstudagskvöldið 71 árs að aldri eftir baráttu við krabbamein.

„Pétur Blöndal var mikilvægur talsmaður sjálfstæðisstefnunnar og traustur liðsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í tvo áratugi. Hann skapaði sér þar sérstöðu á ýmsum sviðum með sérþekkingu sinni, menntun og brennandi áhuga, til að mynda í málefnum lífeyrissjóða, öryrkja og aldraðra, þar sem hann lét sérstaklega til sín taka, auk efnahagsmála í víðu samhengi,“ segir Bjarni ennfremur. Sjálfur hafi hann fengið að njóta þess að eiga samstarf við Pétur á Alþingi í tólf ár.

„Þótt hann hafi verið kominn yfir sjötugt átti hann enn, að eigin mati, margt eftir ógert sem þingmaður. Það er mikil eftirsjá að Pétri, en hann getur verið stoltur af ævistarfi sínu og þeirri fyrirmynd sem hann var og verður með hugsjónum sínum, vinnusemi og trúfesti. Með þakklæti kveð ég Pétur Blöndal og votta fjölskyldu hans samúð mína vegna fráfalls hans.“

Frétt mbl.is: Pétur Blöndal látinn

Pétur Blöndal var mikilvægur talsmaður sjálfstæðisstefnunnar og traustur liðsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í tvo...

Posted by Bjarni Benediktsson on Monday, June 29, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert