Viðræðum slitið í deilu við Rio Tinto

Hjá ríkissáttasemjara.
Hjá ríkissáttasemjara. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í kvöld lauk 9. samningafundi vegna Rio Tinto Alcan, ISAL, hjá Ríkissáttasemjara. Félagsmenn allra verkalýðsfélaganna sem eiga aðild að samningnum hafa samþykkt að hefja vinnustöðvunarferli 1. ágúst næstkomandi en þá hefst yfirvinnubann starfsmanna. Félögin sem standa saman að samningaviðræðunum eru Hlíf, Fit, VM og Matvís. Í frétt á vef Rafiðnaðarsambandsins segir að átökin munu aukast þann 1. september næstkomandi þegar ótímabundið verkfall hefst.

„Á fundinum slitu viðsemjendur okkar, ISAL og SA, viðræðum við samninganefnd starfsmanna. Ekki stendur starfsmönnum ISAL til boða að fá sambærilegar launahækkanir og almennur vinnumarkaður hefur samið um að undanförnu. Ljóst er að Samtök atvinnulífsins sem og fyrirtækið munu þar af leiðandi ýta málinu í enn meiri hörku.“ segir í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert