Fer með tvær milljónir í fæðingarorlofið

Ung kona sem er á leið í fæðingarorlof vann tvær milljónir króna þegar hún var með allar fimm tölurnar réttar í Jókernum þegar dregið var út í lottó sl. laugardagskvöld. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá, en konan mætti á skrifstofur félagsins í dag til að vitja vinningsins. 

Fram kemur að konan hafi keypt miðann á lotto.is. Aðspurð sagðist hún vera nýbyrjuð að spila með.

„Gaman er að segja frá því að hún var sannfærð um að hún væri að fara að vinna í lottó en kærasti hennar var á öðru máli og sagði að líkurnar á því væru litlar. Því varð hún heldur betur ánægð þegar hún sá á sunnudeginum að hún hefði unnið 2 milljónir í Jókernum og að hún hafði rétt fyrir sér. Þessi vinningur mun koma sér vel þar sem vinningshafinn er á leið í fæðingarorlof,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert