Íkveikja við Norðlingaskóla

Slökkvilið var kallað út á öðrum tímanum í nótt vegna elds í vörubretti við Norðlingaskóla. Grunur leikur á því að um íkveikju hafi verið að ræða.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn, sem var tiltölulega lítill samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Þá var ekki hætta á því að eldurinn færi í skólann. 

Enginn var handtekinn, en lögregla rannsakar nú málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert