Vara við hvassviðri

Svona er vindaspáin kl. 18 í dag. Fjólublái liturinn sýnir …
Svona er vindaspáin kl. 18 í dag. Fjólublái liturinn sýnir vindhraða sem er yfir 16 m/s. Skjáskot/Veðurstofan

Búast má við snörpum vindhviðum, 25-30 m/s, undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum síðdegis í dag.

Sjá veðurvef mbl.is.

Í viðvörun Veðurstofu Íslands segir að það gangi í norðaustanhvassviðri suðaustanlands í dag og víða verði öflugir vindstrengir við fjöll, 25-30 m/s, einkum undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum. Dregur smám saman úr vindi seint í kvöld og nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert