10 ára stúlka féll í sjóinn

Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akureyri.
Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Hjörtur

Tíu ára gömul stúlka féll í sjóinn við Krossanes á tíunda tímanum í gærkvöldi. Lögreglan á Akureyri var kölluð út ásamt sjúkraliði til að bjarga stúlkunni. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var stúlkan að leik með yngri vinkonu sinni þegar hún féll í sjóinn. Vinkonan hljóp heim til foreldra sinna til að láta vita hvað hafði gerst en í millitíðinni sáu íbúar á svæðinu stúlkuna í sjónum og komu henni til aðstoðar.

Lögregla kom á svæðið ásamt sjúkrabíl og var stúlkan flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Stúlkan var köld og með blóðnasir en að sögn lögreglu er mikið mildi að sjórinn hafi verið stilltur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert