Erna skipuð listdansstjóri

Erna Ómarsdóttir.
Erna Ómarsdóttir. mbl.is/Brynjar Gauti

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Ernu Ómarsdóttur listdansstjóra Íslenska dansflokksins frá 1. ágúst nk.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Erna Ómarsdóttir stundaði dansnám meðal annars við Listdanskóla Íslands, Rotterdamse Dansakademie og PARTS í Brussel  undir stjórn Önnu Teresu de Keersemaeker. Hún hefur á ferli sínum unnið með mörgum danshöfundum og öðrum listamönnum við uppsetningu eigin verka og annarra.

Hún var listrænn stjórnandi danshópsins Shalala frá 2007, Les Grandes Traversees í Bordeaux 2008, Reykjavik Dancefestival 2013 og hefur verið listrænn ráðgjafi Íslenska dansflokksins frá 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert