Hundrað skjálftar mældust á tæpum tveimur tímum í jarðskjálftahrinu sem gekk yfir Reykjanes í gærkvöldi.
Stærstu skjálftarnir sem búið var að yfirfara voru nærri 4 að stærð. Þeir fundust í Reykjanesbæ og einnig fékk Veðurstofan tilkynningar ofan af Akranesi.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar hófst jarðskjálftahrina um 4 kílómetra norðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg um klukkan 21 í gærkvöldi. Heldur dró úr henni á ellefta tímanum en henni var þó ekki lokið.