Laufey sækist eftir formannsembætti SUS

Laufey Rún Ketilsdóttir.
Laufey Rún Ketilsdóttir.

Laufey Rún Ketilsdóttir, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS), hefur ákveðið að gefa kost á sér sem formaður SUS á sambandsþingi sem haldið verður í Vestmannaeyjum 4.-6. september næstkomandi. Með framboði sínu vill Laufey efla starf SUS með frelsi einstaklingsins að leiðarljósi.

„Ég vil með framboði mínu taka stöðu með ungu fólki í námi og starfi sem vill bæta lífskjör sín. Það hefur sýnt sig að aukið frelsi einstaklinga og atvinnulífs er besta leiðin að bættum lífskjörum. Fyrir þeim atriðum vil ég berjast innan Sjálfstæðisflokksins.“

Laufey Rún er 28 ára lögfræðingur og starfar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Laufey Rún lauk stúdentsprófi af hagfræðibraut Verzlunarskóla Íslands, BA prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Á námsárum sínum sat Laufey í ritnefnd Úlfljóts, tímarits laganema, starfaði í regluvörslu Arion banka og á Juris lögmannsstofu.

Laufey hefur sinnt ýmsum félagsstörfum innan Sjálfstæðisflokksins og er nú framkvæmdastjóri SUS. Hún hefur setið í stjórn SUS frá 2010, þar á meðal sem ritari og varaformaður og var áður í stjórn Heimdallar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert