Tvö hundruð skjálftar mælst

Eins og hér má sjá hafa margir skjálftar mælst á …
Eins og hér má sjá hafa margir skjálftar mælst á svæðinu. mynd/Veðurstofa Íslands

Jarðskjálftahrina hófst vestur af Reykjanesi um klukkan 21 í gærkvöldi. Um tvö hundruð skjálftar hafa mælst síðan, þeir stærstu um 4 að stærð.

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands kemur fram að tilkynningar hafi borist frá Reykjanesbæ og Akranesi um að skjálftar hafi fundist þar. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Veður­stof­unn­ar hófst jarðskjálfta­hrinan um 4 kíló­metra norðvest­ur af Geir­fugla­drangi um klukk­an 21 í gærkvöldi. Aðeins hef­ur dregið úr henni í svip­inn en hún er þó enn í gangi.

Ekki er óal­gengt að slík­ar hrin­ur gangi yfir á þess­um slóðum og þær þurfa ekki að boða neitt, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um jarðeðlis­fræðings.

Stærsti skjálftinn sem mælst hefur í hrinunni var 3,7 að stærð.

Frétt mbl.is: Jarðskjálftar finnast víða

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert