Hitta gerðardóminn í fyrramálið

Húsnæði ríkissáttasemjara.
Húsnæði ríkissáttasemjara. mbl.is/Golli

Gerðardómur í máli Bandalags háskólamanna (BHM) og íslenska ríkisins kemur saman í fyrramálið í Karphúsinu. BHM og ríkið munu ganga til fundar við dóminn klukkan tíu í fyrramálið. 

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir að deiluaðilar hafi hitt formann gerðardómsins á óformlegum fundi í dag og farið yfir stöðuna, en fyrsti eiginlegi fundur gerðardómsins með deiluaðilum verður í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert