Á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Sextán ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Ökumaður var ekki með ökuskírteini sitt meðferðis. Hans bíður nú 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá var nokkuð um að ökumenn sinntu ekki stöðvunarskyldu eða töluðu í síma án handfrjáls búnaðar.

Lögregla bendir ökumönnum á að halda bensínfætinum hæfilega þungum og virða aðrar umferðarreglur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert