Allir ökumenn með sitt á hreinu

Gestir í góðum gír á ATP tónlistarhátíðinni í gærkvöldi.
Gestir í góðum gír á ATP tónlistarhátíðinni í gærkvöldi. Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tugi bifreiða í nótt á Ásbrú, þar sem ATP-tónlistarhátíðin fer nú fram. Um var að ræða eftirlit með ölvunarakstri og ökuréttindum. Reyndist hver einasti ökumaður með allt sitt á hreinu.

Hátíðina sóttu í gærkvöld um þrjú þúsund gestir og lét fólk vel af veru sinni þar, segir í frétt frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert