Eiga von á 300 þúsundasta gestinum í dag

Í dag er von á 300 þúsundasta gesti Landnámssýningarinnar í Aðalstræti 16, en hún er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna í Reykjavík.

Sýningin, sem opnaði í maí 2006, byggir á skálarúst frá 10. öld sem varðveitt er á upprunalegum stað. Með hjálp margmiðlunar er varpað ljósi á líf og tilveru fyrstu íbúa Reykjavíkur og tengsl þeirra við umhverfið í nýju landi. Samkvæmt tilkynningu hefur sýningin frá upphafi hlotið verðskuldaða athygli og hefur aðsókn á hana vaxið umtalsvert hin síðari ár með yfir 100.000 gesti frá árinu 2013.

Tekið verður á móti 300 þúsundasta gestinum með pomp og prakt í dag og mun hann/hún af því tilefni fá viðurkenningarskjal ásamt blómum og gjöfum. Á meðal gjafa sem viðkomandi hlýtur er sérstakt gestakort Reykjavíkur (Reykjavík City Card) en það gildir sem aðgangur í öll helstu söfn í Reykjavík, sundlaugar Reykjavíkur, Húsdýragarðinn og strætó. 

Þess má geta að Landnámssýningin skipar annað sæti á lista Trip Advisor yfir 10 bestu söfn á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert