Hefja lagningu Fitjalínu í næstu viku

Áætlað er að hefja lagningu Fitjalínu 2, 132 kílóvolta (kV) jarðstrengs frá Fitjum til Helguvíkur í næstu viku. Framkvæmdir við slóðagerð, þveranir og skurðgröft hófust í maíbyrjun og í dag og í gær voru 18 risakefli með jarðstrengsefni, sem hvert vegur um 17 tonn, flutt með stórum trukkum frá Sundahöfn út á Reykjanes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert