Í sumarfríi þegar vinningurinn kom

Eigandi lottómiðans sem gaf af sér 12 milljóna vinning í laugardagslottóinu um síðustu helgi var staddur í sumarfríi á erlendri grundu þegar hann fékk símtalið frá Getspá. Vinningshafinn er kona sem er búin að spila lengi með sömu tölurnar og gat ekki hugsað sér að sleppa út útdrætti þannig að hún setti allar uppáhaldtölurnar í áskrift áður en hún hélt af landi brott. 

Það borgaði sig svo sannarlega og það var skálað í kampavíni til að halda upp á vinninginn, segir í frétt um málið frá Íslenskri getspá. Þar kemur fram að þau hjónin séu lengi búin að hugsa sér að skipta um húsnæði en vantaði fjármagn og ætla því að nota hluta af þessum vinningi til þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert